laugardagur, mars 20

Var að skoða blogg hjá einhverjum man ekki hverjum, sem vildi meina að Friðuriinn (Ástþór 2000kall) væri með framboði sínu að gera einhvern skrípaleik, og að ekki ætti að taka því alvarlega ef hann væri að fara í framboð. Jafnvel láta hann og þá er skrifa undir framboð hans, bera allan kostnaðinn við forsetakosningarnar 2004.

Ekki allveg viss um að þetta sé rétt, hvað t.d með Óla ekki er að sjá að hann sé eitthvað að taka þessu allvarlega, á síðum Séð og Heyrt , með strippara og fyrverandi Spice girls Fjölni. Já get ekki betur séð en hann hafi selt þessu so..riti eins og það er stundum kallað brúðkaupsitt, hugsaðu þú ert að kjósa hver það er sem selur sögur sínar og myndir á síður uppablaðana.
Getum við kjósendur gert afturkröfu til hans um að hann borgi síðustu kosningar.
Nei það er öllum frjálst að fara í kosningar hvort sem þeir hafa verið útataðir í Heinz tómatsósu , talað opinberlega um skítlegt eðli eða eru milli tannana.

En ef 2000kallinn, sem virðist vera mjög öfgalegur í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur, sigrar kosningarnar gæti það aðeins gerst að:

a) Forsetaembættið verði eitthvað annað en, rúm milljón í mánaðarlaun, plús engar áhyggjur af eftirlaunum og veifu eða brosmyndir í blöðunum.

b) Að það komi í ljós að forsetaembættið sé algjör tímaskekkja og ekki nauðsinlegt á Íslandi.

Öruggt mál að tveir fínir kostir.

Áður enn Óli bauð sig fram til forseta voru minna en 10% íslendinga sem kusu hann til alþingis, 90%fannst hann allveg út úr kortinu.
Hvað finst fólki um hann nú?.............já mig grunaði það.


Og svona í lokinn þessi síða ef þú ert hvort sem er að slæpast á netinu. Taktu eftir hvað síðan heitir

föstudagur, mars 19

Skemtilegt sem henti mig í fór að kaupa dekk undir Lancerkaggan, rendi inn á Hjulcenteret og spurði um dekk undir hann og hvert verðið væri, svarið sem ég fékk var Við verðum með tilboð eftir 2-3 vikur. viltu ekki bara bíða þangað til?
Að sjálfsögðu sagði ég já, því dekkinn geta allveg beðið í smá tíma. En er þetta ekki þjónusta, að láta mann vita að það sé verið að lækka vöruna áður enn að maður kaupir hana, það er alla vegna á hreinu að ég kaupi dekkin hjá þessum, þegar tilboðið verður hjá þeim. Allveg pönnuþrykkt.

miðvikudagur, mars 17

Sæl(l) öll,
Stór dagur er runnin upp, tveir dallar hafa verið dregnir á flott og ættu að geta farið að skila einhverju frá sér aftur, þ.e.a.s. frystitogaradallurinn Baldvin Þorsteinsson EA er laus úr fjörunni, hefur verið dreginn á flot, og svo er einnig búið að draga rugludallinn han Svein út úr anskotalegri flækju sem hann lenti í er hann reyndi að komast af stað í þessu pikkeríi. Þøkk sé systur.


En svona í lokinn til að vera með eitthvað að skoða er hér smá saga, Sniglaveisla Sjálfstæðisflokksins. Þetta er ekki allveg satt! Eða hvað? Kannast þú við eitthvað.

þriðjudagur, mars 16

Góða nótt, er farinn að læra smá með góðri hjálp. það er enginn önnur en spamidill. Vona að þetta eigi eftir að ganga.. jara jara.