föstudagur, mars 26

Hvernig heldur þú að það væri ef þú óbreyttur borgari, hefðir vinnu hjá stóru fyrirtækiframið sem væri rekið af fótboltabullu, hnupplaðir einhverju smá, svindlaðir á stimpillklukkuni, og létir fyrirtækið reisa hús fyrir þig á kostnað samstarfsaðila, og skrippir svo út á pizzustað pantaðir 1fm. af pizzu með tepparoni, létir senda þér heim, og skrifaðir á reikningin hjá stóra fyrirtækinu, vissir ekkert hvert pizzan væri niður kominn og reyndir að ljúga að hún hefði öruglega farið eitthvað annað, reyndir að senda pizzu kassan til paka til pizzustaðarins með frosini Mamma mía pizzu, er málið kæmist upp, yrðir að segja starfinu upp og hætta eftir langan umhugsun, meðan þú tækir afleiðingunum gjörða þinna. Væari virkilegt að þér yrði þá boðinn stað sem markaðs og kynningarfulltrúi í dótturfyrirtækinu sem önnur fótboltabulla ræki sem styddi sama lið og hin bullan, tæki þátt í uppþotum og skítkasti við bullur annara liða................ ÖRUGLERGA. kútur.

"I´ll be back"



Smá svona er ég fann á flandrinu um veraldarvefinn copað og pastað



nef í fen

- ef einhver skildi detta beint á nefið í fen

gella, falleg

- eðlileg viðbrögð þegar fólk sér mömmu.

innisinni

- sumir eru vinstri sinnar, aðrir innisinnar!

kívívík

- gæti verið nafn á vík þar sem mikið er ræktað af kívíum

raksápupáskar

- ef maður sprautar raksápu um húsið tila að skreyta með. Hvít jól eða rauð jól!

dna-land

- það sem Kári (þvær og Vindur 800 millur ) $tefán$$on kallar Ísland

Á Gnarr Rangá?

- eða á Jón Gnarr Þjórsá

Siv leiddi Elvis

- ef Siv Friðleifs myndi leiða Elvis - augljóst

Amma sá afa káfa af ákafa á Samma

- ef eitthvert aumingjans barnabarn er að segja söguna frá því þegar amma hans sá afa hans káfa af miklum ákafa af manni sem heitir Sammi



fimmtudagur, mars 25

Úffffffff.. er bara ekkert með til að röfla um nú.
Svo kanski þessi síða sé bara til að kíkja á og fá frétttir?

Þetta eru hvað hélst um Júravísakeppnina
Hvar verður næsta Eurovisionkeppni haldinn?

Danmörku... 25% 2
Ísrael.... 0% 0
Bretlandi......... 0% 0
Eistlandi........... 25% 2
Fraklandi..... 0% 0
Færeyjum.... 0% 0
Þýskalandi......... 0% 0
Lettlandi.......... 38% 3
Noreg......... 0% 0
Belgíu............. 13% 1

samtals 8 gerðu athugasemdir

En eins og allir vita verður hún í Tyrklandi, þar sem tyrkir sigruðu í fyrra með gamla smellinuim frá Stuðmönnum.....
.....fæ mér sviðakjamma.
því að ekkert liggur á,
jólatréið er ennþá uppi frá í hittifyrra......lalalalalal lalalalala
o.s.v

mánudagur, mars 22

Samkeppni! já hvað er samkeppni? hér i 2veldi er það t.d milli samkeppnisaðila.
Gott dæmi bensínverð. Einn morgunnin er ég var á leið í gymnið klukkan 11. sá ég verðið á Shell 6,74kr (*12= 80,88kr ísl). þetta er 95 okt. bensin. Að sjálfsögðu dreyf ég mig og stútfyllti Lancerkaggan. Klokken 12:15 var það orðið 8,45kr (101,4kr.ísl). Góð hækkun það og ekki virtist það hafa áhrif hvað byrðirnar hafi verið miklar, enginn frétt í miðlunum, eða nokkur viðvörun. Klokken 15.30 varð lækkun í 8,30kr (96 kr ísl) . En enginn forstjóri eða blaðafulltrúi sem tjáði að lagerinn hafi verið svona eða svona. Og enn ekki búið, klokken 19 enn eitt verðið 7,88.(94,55 kr ísl) Ótrúlegt! Á cirka átta tímum 4 verð alltaf verið að hækka og lækka. Og aldrei sama og hjá samkeppnisaðilanum, og munar yfir 20 kr ísl.

Í bannannalýðveldi er það fréttnæmt ef bensin lækkar um heilar 2.kr, og ávalt til miklar birgðir ef heimsmarkaðsverð lækkar ( undantekning ef einhver nýr kemur með lærra verð, þá er hægt að lækka STRAX og selja þó tap sé á), samkeppnisaðilar halda fund til að ákveða verðið, og ef samkepnisstofnun tekur til sinna ráða og þá hvað? ekkert enn nema félöginn halda sameiginlegan fund til að ákveða hvað þau eigi að gera.

Já í bannanalýðveldi er samkeppni samráð eða sameiginleg ákvörðun samkeppnisaðila.