laugardagur, maí 22

Hvað er, á, hef og vill.............

Ég er Sv1
Ég er faðir
Ég er í námi
Ég er laglaus
Ég er vakandi
Ég er Spursari
Ég er Evrópubúi
Ég er í Danmörk
Ég er pólítískur
Ég er yfir 120cm
Ég er giftur Döggu
Ég er pabbi Sævars, Agnesar og Elvars
Ég er ekkert meira en ég er

Ég á hjól
Ég á Lancer
Ég á 2 ömmur
Ég á 1 tölvu
Ég á 2 bræður
Ég á 2 systur
Ég á foreldra
Ég á veski (tómt)
Ég á símanímer 5055-4711
Ég á hleðslubatteríborvél
Ég á takkaskó og línuskauta.
Ég á afmæli 4.júly einusinni á ári.
Ég á ekkert meira en ég á


Ég hef fermst
Ég hef brugað
Ég hef blótað
Ég hef það gott
Ég hef aukakíló
Ég hef spilað blak
Ég hef göt í eyrunum
Ég hef keyrt of hratt
Ég hef drukkið øl(lara)
Ég hef kosið vitlaust í öllum kosningum.
Ég hef svindlað á prófi. Oftar en einu sinni.
Ég hef fæðst í Keflavík og alist upp í Gerðahreppi
Ég hef ekkert meira en ég hef

Ég vill Cuba Libre
Ég vill engar skuldir
Ég vill Carlsberg kaldan
Ég vill komast á áfangastað
Ég vill mikið grænmeti á pizzuna
Ég vill flýa röðina af aumingjum
Ég vill að öllum lýði vel í janúar
Ég vill börnin heim á hverju kvöldi
Ég vill Bandaríkjamenn í Bandaríkjunum
Ég vill alla íslendinga í reikning hjá BYKO
Ég vill kunna að dansa (líka þegar ég er fullur)
Ég vill vatn, vinnu, spítala, skóla, og mat til að lifa
Ég vill ekkert meira en ég vill

þriðjudagur, maí 18

"Ved du hvad, lesandi óður" Var að skoða nýasta se og hör það er bara allt brjálað í myndum úr brúðkaupinu þeirra Frikka og Mary, sérstakt aukablað með myndum af gestunum og er ég var búinn að fara nokkuð vel yfir það rakst ég á mynd með undirskriftinni "Portúlgalski prinsinn Jón jónson var að sjálfsögðu í veisluni glæsilegur að vanda enda með sína fögru eiginkonu með sér sem er ekki sýður glæsileg." það versta við þetta var að fagra eiginkonan var enginn önnur en Dorit nokkur Mussaf eða hvernig sem þetta er skrifað, sjokk fyrir grísinn á berassaðastöðum skyldi maður halda, ef það er satt að hún hafi neitað að hafa hann með og er svo kominn með annan upp á .ig. En það var verið að kvarta af hverju madur fór ikke á brúðkaupið Dorit till halds og traust... sen það sér maður að það var enginn þörf á.....


svoooooooooooooo er það júgslaóvísíónið... þetta er enginn hellví... söngvakeppni! þetta er einungis skoðunarkönnun á því hvernig fólki í evrótini lýður á tilteknu kvöldi í maí.... ertu með eða á móti sígunum, mafíósum, svörtum eða hvítum.... flestum leiðsvo að þeirr voru hrifnir af ex sovétjúníónmafíuni...en allavegna held ég að ég hafi staðið mig betur en flestir Íslendingar kjósti(já ég veit kaus) upphandlegsvöðvan 2x..

sunnudagur, maí 16

Var að fá þetta sent ípósti bara nokkuð smellið......................



>Þetta er eins og veðrið gerist best á Íslandi, svo það er best að byrja
>hér.
>
>+15°C
>Fólkið á Spáni notar kuldaúlpur og þykka vettlinga.
>Íslendingar liggja í sólbaði.
>
>+10°C
>Frakkar reyna af vanmætti að fá kyndinguna í gang.
>Íslendingar planta blómum í garðana sína.
>
>+5°C
>Bílar á Ítalíu neita að fara í gang.
>Íslendingar fara að gamni sínu í bíltúr á Saab druslunni.
>
>0°C
>Eimað vatn frýs.
>Vatnið í Hvítá verður aðeins þykkra.
>
>-5°C
>Fólkið í Californíu frýs næstum til dauða.
>Íslendingarnir grilla í síðasta sinn áður en veturinn skellur á.
>
>-10°C
>Bretar byrja að kynda húsin sín.
>Íslendingar byrja að nota langerma boli.
>
>-20°C
>Götusalar byrja að flýja frá Mallorca.
>Íslendingar enda miðsumarshátíðina. Haustið er gengið í garð!
>
>-30°C
>Grikkir deyja úr kulda og hverfa af yfirborði jarðar.
>Íslendingar hætta að þurrka þvott úti.
>
>-40°C
>París byrjar að gefa eftir kuldanum.
>Íslendingar standa í biðröð við pylsuvagnana.
>
>-50°C
>Ísbirnirnir byrja að flykkjast burt frá Norðurpólnum.
>Íslenska landhelgisgæslan frestar björgunaræfingum, í von eftir alvöru
>vetrarveðri.
>
>-60°C
>Mývatn frýs.
>Íslendingar leigja sér spólu og halda sig inni við.
>
>-70°C
>Jólasveinninn heldur í suðurátt.
>Íslendingarnir verða pirraðir því þeir geta ekki geymt brennivínið sitt
>úti.
>Íslenska landhelgisgæslan setur í gang björgunaræfingar.
>
>-183°C
>Örverur í mat lifa ekki af.
>Íslenskar kýr kvarta yfir handköldum bændum.
>
>-273°C
>Öll atóm staðnæmast vegna kulda!
>Íslendingar byrja að tala um að það sé kalt úti.
>
>-300°C
>Helvíti frýs!
>Ísland vinnur Eurovision!