
sTOLINN jólasaga..... en góð samt..
Þegar ég var lítill sendi ég einu sinni jólasveininum bréf. Ég skrifaði það og setti í skóinn hjá mér eitt kvöld fyrir jól. Hér er það :
Kæri Jólasveinn.
Ég er búinn að vera góður strákur í allt ár. Það sem mig langar mest í jólagjöf í ár er að pabbi hætti að lemja mömmu. Hann er alltaf að berja hana og öskra á okkur....
Ég vildi líka óska að pabbi hætti að drekka. En það er mikið vandamál um jólin þegar við erum að fara í matarboð til ættingjana. Síðustu jól réðs hann á ömmu og fótbraut hana og svo kýldi hann Benna frænda í rot. Á áramótunum var hann ekkert skárri . Hann nennti ekki út í garð með mér að skjóta flugelda og fór bara með mig út á svalir. Svo var hann ekki með stand til að skjóta flugeldunum úr þannig að hann hélt bara á þeim. Og það sem verra er þá miðaði hann á nágranna okkar og skaut flugeldunum á þá, sér til mikillar skemmtunar. Kannski það sem ég er að biðja þig um er nýjan pabba eða þá að þú myndir kannski bara taka hann með þér á norðurpólinn og laga hann. Hann hefði gott af því að vera álfur í eitt ár.
Þegar ég vaknaði var jólasveinninn búinn að taka bréfið og svara því :
Sæll Hilli.
Það má deila um það hversu þægur þú ert búinn að vera. Þú nennir aldrei að fara út í búð og kaupa sígarettur fyrir pabba þinn. Og svo skal ég segja þér að það er ástæða fyrir því að pabbi þinn er að lemja mömmu þína. Hún er skítug hóra og er alltaf að daðra við alla karlmenn sem hún hittir. Fyrir utan það þá er hún hætt að “gefa góðann” ef þú skilur hvað ég meina. Það er hollt að drekka áfengi og það er ekki pabbi þinn sem er með leiðindi heldur allir aðrir í kring um hann. Sérstaklega liðið í móðurættinni þinni. Tengdamamma hans var með leiðindi á jóladag í fyrra og neitaði að láta hann hafa smá vodka pela sem hún átti upp í skáp. Hún átti skilið að vera fótbrotin og svo veistu hvernig Benni frændi er , hann er alltaf með einhver leiðindi. Þegar þú ert orðinn eldri áttu eftir að kunna meta þegar pabbi þinn kenndi þér að skjóta niður leiðindanágranna sem eru alltaf að bögga þig :
,, ...helvítis fyllibyttan þín ,hvernig væri að þú færir að slá garðinn þinn. Og taktu svo upp skítinn eftir hundinn þinn , hann kúkar út um allt í garðinum hjá okkur...”
En þú veist alveg að þið eigið engann hund , það er bara pabbi þinn að sína þessu pakki hver ræður. Þannig að eins og þú sérð þá er það ekki pabbi þinn sem er vandamálið. Enda er jólasveinninn á fullu að reyna að redda þér nýrri, sexy, mömmu fyrir jólin.
Kv,
Jólasveinninn.
PS. Ekki sýna mömmu þinni þetta bréf.

3 Comments:
Þetta er bara snilld.hahaha Hafðu það svo gott um jólin.love you
PS.er Millwood búinn að lesa þetta.
Jóla hvað ?
hmmmm
Skrifa ummæli
<< Home